Lykilorð
Hægt er að velja hvernig síminn notar aðgangsnúmer og öryggisstillingar í Valmynd >
Stillingar > Öryggis-stillingar.
● Öryggisnúmerið ver símann fyrir óheimilli notkun. Forstillta númerið er 12345. Þú
getur breytt númerinu og stillt símann á að biðja um númerið.
● PIN-númerinu (eða UPIN-númerinu), sem fylgir með símanum, er ætlað að hindra að
kort símans sé notað í leyfisleysi.
● PIN2-númer (eða UPIN2-númer) fylgir sumum SIM-kortum (eða USIM-kortum) og er
nauðsynlegt til að komast í ýmsa þjónustu.
● PUK- (UPUK) og PUK2-númer (UPUK2) kunna að fylgja SIM-kortinu (USIM). Ef PIN-
númerið er slegið rangt inn þrisvar sinnum í röð biður síminn um PUK-númerið. Ef
númerin fylgja ekki með símanum skaltu hafa samband við þjónustuveituna.
● Slá þarf inn lykilorð útilokunar fyrir Útilokunar- þjónusta til að takmarka móttekin
og hringd símtöl (sérþjónusta).
● Til að skoða eða breyta stillingum fyrir öryggiseininguna velurðu Valmynd >
Stillingar > Öryggis-stillingar > Stillingar fyrir öryggiseiningu.