Nokia 3500 classic - Um tækið

background image

Um tækið

Þráðlausi síminn sem lýst er í handbókinni er samþykktur til notkunar á EGSM 900, GSM

1800 og GSM 1900 símkerfum. Fáðu frekari upplýsingar um símkerfi hjá

þjónustuveitunni.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og

lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að afrita, breyta, flytja eða

framsenda myndir, tónlist (þ.m.t. hringitóna) og annað efni.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem

geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega, einkum

upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera

kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið

truflun eða hættu.