Nokia 3500 classic - Minniskort

background image

Minniskort

Á minniskorti er hægt að vista margmiðlunarskrár líkt og myndskeið, lög og hljóðskrár

og myndir og gögn í skilaboðum.

Viðvörun: Öll minniskort skal geyma þar sem börn ná ekki til.

Sumar af möppunum í Gallerí með efni sem síminn notar (t.d. Þemu) kunna að vera

vistaðar á minniskortinu.
Upplýsingar um það hvernig á að setja minniskort í símann og taka það úr honum er að

finna í

„Ísetning microSD-korts“

á bls.

12

.

Minniskort forsniðið
Sum minniskort eru forsniðin af framleiðanda og önnur þarf að forsníða. Þegar

minniskort er forsniðið er öllum gögnum eytt af því varanlega.
1. Minniskort er forsniðið með því að velja Valmynd > Gallerí eða Aðgerðir, möppu

minniskortsins

og Valkost. > Forsníða minnisk. > .

2. Þegar búið er að forsníða kortið skaltu slá inn heiti fyrir minniskortið.

Minniskortinu læst
Veldu lykilorð (að hámarki 8 stafir) til að læsa minniskortinu fyrir óleyfilegri notkun.
Veldu möppu minniskortsins

og Valkost. > Setja lykilorð.

Lykilorðið er geymt í símanum og þú þarft ekki að slá það inn aftur á meðan þú notar

minniskortið í sama síma. Ef þú vilt nota minniskortið í öðru tæki verður beðið um

lykilorðið.
Til að eyða lykilorðinu velurðu Valkost. > Eyða lykilorði.

Minnisnotkun skoðuð
Þú getur skoðað minnisnotkun mismunandi gagna, og það hversu mikið minni er laust

á minniskortinu til að setja upp nýjan hugbúnað á minniskortinu.
Veldu minniskortið

og Valkost. > Upplýsingar.