Hljóð- og myndspilari
Hægt er að skoða, spila og hlaða niður skrám eins og myndum, hljóðskrám,
myndskeiðum og hreyfimyndum; sem og skoða samhæfar straumspilunarskrár á
netþjóni (sérþjónusta).
Veldu Valmynd > Miðlar > Spilari > Opna Gallerí, Bókamerki, Fara á veffang eða
Hlaða niður miðlun til að velja eða hlaða niður mynd- eða hljóðskrám.
Veldu Valmynd > Miðlar > Spilari > Fram/Til baka bil til að velja hversu hratt er
spólað áfram eða til baka.
Stillingar fyrir straumspilun
Hægt er að fá stillingar fyrir straumspilun í stillingaboðum frá þjónustuveitunni eða
símafyrirtækinu.
Sjá „Stillingaþjónusta“, bls. 9.
Einnig er hægt að slá stillingarnar inn
handvirkt.
Sjá „Stillingar“, bls. 35.
Stillingarnar eru teknar í notkun á eftirfarandi hátt:
1. Veldu Valmynd > Miðlar > Spilari > Straumstillingar > Samskipun.
2. Veldu þjónustuveitu, Sjálfgefnar, eða Eigin stillingar fyrir straumspilun.
3. Veldu Áskrift og reikning fyrir straumspilunarþjónustu sem er innifalinn í virku
stillingunni.
M i ð l a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
38