
Textaskilaboð
Tækið styður sendingu textaskilaboða sem eru lengri en sem nemur
lengdartakmörkunum stakra skilaboða. Lengri skilaboð eru send sem tvö eða fleiri
N o t k u n v a l m y n d a r i n n a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
20

skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það. Stafir sem nota
kommur eða önnur tákn, ásamt stöfum sumra tungumála, taka meira pláss en
venjulegir stafir og takmarka þannig þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum
skilaboðum.
Lengdarvísir skilaboðanna efst í horni skjásins sýnir hversu margir stafir eru eftir og í
hversu mörgum hlutum þarf að senda skilaboðin.
Áður en hægt er að senda textaskilaboð eða tölvupóstskeyti er nauðsynlegt að vista
númer skilaboðamiðstöðvarinnar. Veldu Valmynd > Skilaboð > Skilaboða-
stillingar > Textaboð > Skilaboðamiðstöðvar > Bæta við miðstöð, sláðu inn heiti
og veldu númer þjónustuveitunnar.