
9. Staðsetning
Símkerfið kann að senda þér staðsetningarbeiðni (sérþjónusta). Hafðu samband við
þjónustuveituna til að gerast áskrifandi að staðsetningarupplýsingum og samþykkja
sendingar þeirra.
Veldu Samþ. eða Hafna til að samþykkja eða hafna beiðni um staðsetningu. Ef þú missir
af beiðninni samþykkir eða hafnar síminn henni sjálfkrafa í samræmi við það sem þú
hefur ákveðið með símafyrirtækinu þínu eða þjónustuveitu.
Til að skoða upplýsingar um 10 síðustu tilkynningar og beiðnir, eða til að eyða þeim,
velurðu Valmynd > Notkunarskrá > Staðsetning > Staðsetnin.skrá > Opna
möppu eða Eyða öllum.