Öryggi
Þegar öryggisatriði sem takmarka símtöl eru í notkun (t.d. útilokun símtala, lokaður
notendahópur og fast númeraval), er hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið.
Veldu Valmynd > Stillingar > Öryggis-stillingar og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● Krefjast PIN-númers eða Krefjast UPIN-númers — til að beðið sé um PIN eða UPIN
númerið í hvert skipti sem kveikt er á símanum. Á sumum SIM-kortum er ekki hægt
að slökkva á beiðni um númerið.
● PIN2-beiðni — til að velja hvort beðið sé um PIN2-númerið þegar tiltekinn valkostur
símans sem er varinn með PIN2-númerinu er notaður. Á sumum SIM-kortum er ekki
hægt að slökkva á beiðni um númerið.
● Útilokunar- þjónusta — til að loka fyrir símtöl í og úr símanum (sérþjónusta). Krafist
er lykilorðs vegna útilokunar.
● Fast númeraval — til að takmarka hringd símtöl við valin símanúmer, ef SIM-kortið
styður valkostinn. Þegar fast númeraval er á eru GPRS-tengingar ekki mögulegar
nema þegar textaskilaboð eru send um GPRS-tengingu. Í því tilviki verða símanúmer
viðtakandans og skilaboðamiðstöðvarinnar að vera á listanum yfir númer í föstu
númeravali.
● Lokaður notendahópur — til að tilgreina hóp fólks sem hægt er að hringja í og sem
getur hringt í þig (sérþjónusta).
● Öryggisstig — Veldu Sími til að beðið sé um öryggisnúmerið í hvert skipti sem nýtt
SIM-kort er sett í símann. Veldu Minni til að beðið sé um öryggisnúmerið þegar minni
SIM-kortsins er valið og þú vilt velja annað minni.
● Aðgangslyklar — til að breyta öryggisnúmerinu, PIN-, UPIN- eða PIN2-númerinu,
eða lykilorði útilokunar
S t i l l i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
35
● Númer í notkun — til að velja hvort PIN- eða UPIN-númerið eigi að vera virkt
● Heimildavottorð eða Notandavottorð — til að skoða lista yfir heimilda- eða
notandavottorð sem hlaðið hefur verið niður í símann.
Sjá „Vottorð“, bls. 47.
● Stillingar fyrir öryggiseiningu — til að skoða Upplýs. um öryggiseiningu, virkja
Biður um PIN f. öryggiseiningu eða breyta PIN fyrir öryggiseiningu eða PIN fyrir
undirskrift.
Sjá „Lykilorð“, bls. 9.