Dagsetning og tími
Til að breyta gerð klukkunnar, tímastillingum, tímabelti og dagsetningarstillingum
velurðu Valmynd > Stillingar > Tími og dagsetning > Tími, Dagsetning eða Tími
og dagur uppfærast sjálfir (sérþjónusta).
Þegar þú ferðast um annað tímabelti velurðu Valmynd > Stillingar > Tími og
dagsetning > Tími > Tímabelti og tímabeltið á staðnum sem þú ert á í samræmi
við tímamismuninn á milli staðartíma Greenwich (GMT) eða samræmds alþjóðatíma
(UTC). Tíminn og dagsetningin eru stillt til samræmis við tímabeltið og þannig birtist
réttur senditími texta- eða margmiðlunarskilaboða.
Sem dæmi er GMT -5 tímabeltið fyrir New York (Bandaríkjunum), 5 klst. vestur af
tímanum í Greenwich/London (Englandi).