
Hringja
Veldu Valmynd > Stillingar > Símtals-stillingar og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● Símtalsflutningur — til að flytja innhringingar (sérþjónusta). Ef til vill geturðu ekki
flutt símtöl ef einhver valkostur sem útilokar símtöl er virkur.
Sjá
„Öryggi“, bls. 35.
● Skýrleiki tals — til að auka talskilning þegar umhverfishávaði er mikill
● Lyklaborðssvar — til að svara mótteknu símtali með því að ýta í stutta stund á hvaða
takka sem er, fyrir utan rofann, vinstri og hægri valtakkana eða hætta-takkann
● Sjálfvirkt endurval — til að gera að hámarki 10 tilraunir til að koma á sambandi við
númer sem hringt er í
● Hraðval — til að hringja í nöfn og símanúmer sem tengd eru talnatökkunum 2 til 9
með því að halda inni viðkomandi takka
● Biðþjónusta fyrir símtöl — til að símkerfið láti þig vita af innhringingu meðan á
öðru símtali stendur (sérþjónusta)
● Samantekt eftir símtal — til að birta í stutta stund upplýsingar um lengd símtala
að þeim loknum
● Birta upplýsingar um mig — til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt
(sérþjónusta). Til að nota stillingarnar sem þú samþykktir með þjónustuveitunni
velurðu Stillt af símkerfi.
● Lína til að hringja — til að velja símalínu 1 eða 2 til að hringja, ef SIM-kortið styður
það (sérþjónusta)