
Stillingar
Hægt er að stilla mismunandi valkosti símans. Þjónustuveitan kann einnig að senda þér
þessar stillingar.
Sjá „Stillingaþjónusta“, bls. 9.
Veldu Valmynd > Stillingar > Samskipan og svo einhvern af eftirtöldum valkostum:
● Sjálfgefnar samskipanir — til að skoða hvaða þjónustuveitur eru vistaðar í
símanum og velja eina þeirra sem sjálfgefna
● Virkja sjálfgefið í öllum forritum — til að virkja sjálfgefna stillingu fyrir studd forrit
● Helsti aðgangsstaður — til að skoða vistaða aðgangsstaði
● Tengjast við þjónustusíðu — til að hlaða niður stillingum frá þjónustuveitunni
● Stillingar fyrir stjórnanda tækis — til að leyfa eða leyfa ekki móttöku
hugbúnaðaruppfærslna fyrir símann. Það fer eftir símanum hvort hægt sé að velja
þennan valkost.
Sjá „Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum“, bls. 34.
● Eigin stillingar — til að bæta handvirkt við nýjum einkaáskriftum fyrir ýmsar
þjónustur og til að virkja þær eða eyða. Til að bæta við nýrri áskrift velurðu Nýr eða
Valkost. > Bæta við nýjum. Veldu þjónustugerðina og færðu inn nauðsynlegar
breytur. Til að virkja reikning velurðu hann og svo Valkost. > Virkja .