Nokia 3500 classic - Ísetning microSD-korts

background image

Ísetning microSD-korts

Aðeins skal nota samhæf microSD kort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu

tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort

sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og

tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.

1. Slökktu á símanum, renndu bakhliðinni af og taktu rafhlöðuna úr símanum.
2. Ýttu á festingu minniskortsins til að opna hana (1).
3. Opnaðu festinguna (2) og settu minniskortið í hana þannig að snerturnar snúi inn á

við (3).

4. Lokaðu festingunni (4) og renndu henni til þar til hún smellur á sinn stað (5).
5. Settu rafhlöðuna í símann og settu svo bakhlið hans aftur á hann.