SIM-kort og rafhlaða sett í
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá seljanda SIM-kortsins. Þetta
getur verið þjónustuveitan eða annar söluaðili.
Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-4C rafhlöðu. Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia.
Sjá „Leiðbeiningar um sannvottun fyrir Nokia rafhlöður“, bls. 50.
SIM-kortið og snertur þess geta hæglega skemmst ef kortið rispast eða bognar. Því þarf
að fara varlega með kortið þegar það er sett í eða tekið úr.
1. Ýttu á sleppitakkann (1) til að
losa um og fjarlægja
bakhliðina (2). Fjarlægðu
rafhlöðuna eins og sýnt er á
myndinni (3).
2. Opnaðu (4) SIM-
kortafestinguna. Settu SIM-
kortið í (5) þannig að
snerturnar snúi niður í
höldunni. Lokaðu raufinni
(6).
T æ k i ð t e k i ð í n o t k u n
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
11
3. Gættu að snertum
rafhlöðunnar (7) og settu
rafhlöðuna í (8). Settu efri
hluta bakhliðarinnar á tækið
(9) og lokaðu henni (10).