17. Vefur
Þú getur fengið aðgang að ýmiss konar netþjónustu í vafra símans. Útlit getur verið
breytilegt eftir skjástærðinni. Hugsanlega er ekki hægt að skoða allt efni internetsíðna.
Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst og sem veitir nægilegt öryggi
og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.
Upplýsingar um mismunandi þjónustu, verð og leiðbeiningar fást hjá þjónustuveitunni.
Þú getur fengið nauðsynlegar stillingarnar fyrir vefskoðun í stillingaboðum frá
þjónustuveitunni.
Sjá „Stillingaþjónusta“, bls. 9.
Til að stilla þjónustu velurðu Valmynd > Vefur > Stillingar > Stillingar
samskipana og svo stillingu og reikning.