Nokia 3500 classic - Stafræn undirskrift

background image

Stafræn undirskrift

Þú getur búið til stafræna undirskrift með símanum ef SIM-kortið inniheldur

öryggiseiningu. Stafræn undirskrift getur jafngilt því að maður skrifi undir reikning,

samning eða annað pappírsskjal.
Þegar nota á stafræna undirskrift er valinn tengill á síðu, t.d. titill bókar sem á að kaupa

og verð hennar. Textinn sem skrifa á undir, hugsanlega upphæðin og dagsetning, birtist.
Athugaðu hvort texti haussins sé Lesa og að táknið fyrir stafræna undirskrift

birtist.

Ef táknið fyrir stafræna undirskrift birtist ekki hefur öryggið brugðist og þá skal ekki

færa inn neinar persónulegar upplýsingar (eins og PIN fyrir undirskrift).
Til að undirrita textann er hann allur lesinn og síðan er hægt að velja Undirrita.

Hugsanlega kemst textinn ekki fyrir á einum skjá. Því þarf að gæta þess að fletta í

gegnum hann allan og lesa hann áður en hann er undirritaður.
Veldu notandavottorðið sem þú vilt nota og sláðu inn PIN fyrir undirskrift. Þá hverfur

táknið fyrir stafræna undirskrift og þjónustan birtir ef til vill staðfestingu á

innkaupunum.